Styrkir til menningarsamstarfs milli Noregs og Íslands – opið fyrir umsóknir til 2. desember
Norsk stjórnvöld veita árlega fé til norsks-íslensks menningarsamstarfs. Markmið framlagsins er að stuðla að fjölbreyttu menningarsamstarfi milli landanna og efla tengsl listamanna og annarra sem starfa á sviði menningar. Norskir og íslenskir listamenn, menningarstarfsmenn, menningarstofnanir og samtök geta því sótt um styrk.
Norska menningarráðið (Norsk Kulturdirektoratet ) og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið taka umsóknirnar til umfjöllunar. Umsækjendur verða að fylla út umsóknareyðublað á vef norska menningarráðsins en þar má finna allar upplýsingar um umsóknarskilyrði og upphæð framlagsins. Æskilegt er að umsóknir séu skrifaðar á norsku, dönsku, sænsku eða ensku.
Umsóknarfrestur rennur út kl. 12:00 þann 2. desember nk.
Vefur norska menningarráðsins
Umsóknareyðublað
Upplýsingafundur 11. nóvember kl. 12
Opinn upplýsingafundur um styrki til norsks-íslensks menningarsamstarfs verður haldinn á netinu miðvikudaginn 11. nóvember kl. 12 að íslenskum tíma. Fundurinn fer fram á norsku en hefst á stuttri kynningu á ensku. Þau sem ekki skilja norsku geta óskað eftir einstaklingsbundinni leiðsögn.
Nánari upplýsingar um fundinn.
Allar frekari upplýsingar veitir Nina Refsnes Smith, ráðgjafi hjá Kulturdirektoratet, í gegnum netfangið [email protected].