Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
26. mars 1997 /
Utanríkisráðuneytið

Afhending trúnbr. í Genf


FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
_____________


Nr. 23


Benedikt Jónsson, sendiherra, afhenti hinn 24. mars sl. Vladimir Petrovsky, aðalframkvæmdastjóra Evrópuskrifstofu Sameinuðu þjóðanna, trúnaðarbréf sitt sem fastafulltrúi við stofnunina.
Í gær, 25. þ.m. gekk hann á fund Renato Ruggiero, aðalframkvæmdastjóra Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, og tók til starfa sem fastafulltrúi Íslands þar.


Utanríkisráðuneytið,
26. mars 1997
Var efnið hjálplegt?