Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
7. apríl 1997 /
Utanríkisráðuneytið

Stofnun stjórnmálasambands við Túrkmenistan


FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
_____________


Nr. 25

Fastafulltrúar Íslands og Túrkmenistan hjá Sameinuðu þjóðunum undirrituðu hinn 13. febrúar 1997 sameiginlega yfirlýsingu um stofnun stjórnmálasambands milli ríkjanna.

Utanríkisráðuneytið,
Reykjavík, 7. apríl 1997.
Var efnið hjálplegt?