Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
10. október 1997 /
Utanríkisráðuneytið
Íslenskir lögreglumenn til starfa í Bosníu
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
_____________
Nr. 85
Þrír íslenskir lögreglumenn Guðmundur Ómar Þráinsson, Gunnar Jóhannes Jóhannsson og Sveinn Guðni Guðnason halda til Bosníu í dag til að taka þátt í alþjóðalögreglusveitum Sameinuðu þjóðanna. Lögreglumennirnir munu starfa í Bosníu í sex mánuði sem hluti af danskri lögreglusveit.
- Utanríkisráðuneytið,