Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
24. maí 2000 /
Innviðaráðuneytið
Undirritun samstarfssamninga
Samgönguráðuneytið hefur átt árangursríkt samstarf við Slysavarnafélagið Landsbjörgu og forvera þess.
Til að treysta enn frekar samstarf ráðuneytisins og Slysavarnafélagsins Landsbjargar mun samgönguráðherra, Sturla Böðvarsson, undirrita í dag á landsþingi Slysavarnafélagsins Landsbjargar þjónustusamninga við félagið um alla þá þætti sem það hefur annast á liðnum árum í öryggimálum sjómanna.