Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
8. nóvember 2001 /
Utanríkisráðuneytið
Samkomulag um drög að fríverslunarsamningi milli EFTA-ríkjanna og Singapúr
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
________
Nr. 108
Náðst hefur samkomulag milli EFTA-ríkjanna og Singapúr um drög að fríverslunarsamningi. Nær samningurinn til vöru- og þjónustuviðskipta og fjárfestinga. Samningurinn verður væntanlega lagður fyrir ráðherrafund EFTA landanna til undirritunar í Genf um miðjan desember.
Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 8. nóvember 2001.