Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
4. febrúar 2002 /
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Ráðstefna um EES-samninginn og íslensk sveitarfélög
Þann 8. febrúar næstkomandi munu Samband íslenskra sveitarfélaga og utanríkisráðuneytið standa fyrir ráðstefnu um áhrif EES-samningsins á íslensk sveitarfélög. Ráðstefnan er öllum opin en markmið hennar er fyrst og fremst að veita sveitarstjórnarmönnum og öðrum stjórnendum sveitarfélaga yfirsýn yfir áhrif ESB og EES-samningsins á íslensk sveitarfélög. Framsögumenn verða innlendir og erlendir.
Ráðstefnan verður haldin í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, Hamraborg 6 og mun standa frá u.þ.b. kl. 13:00-17:30. Ráðstefnustjóri verður Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson.
Ráðstefnugjald er 3.500 krónur. Veitingar eru innifaldar í þátttökugjaldi. Þátttaka óskast tilkynnt skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga eigi síðar en 5. febrúar næstkomandi, í síma 515 4900, á myndsendi númer 515 4903 eða á tölvupóstfangið [email protected].
Nánari upplýsingar: www.samband.is