Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
21. maí 2002 /
Utanríkisráðuneytið
Trúnaðarbréfsafhending í Slóveníu
Nr. 047
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra afhenti í dag, þriðjudaginn 21. maí 2002, hr. Milan Kucan, forseta Slóveníu, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Slóveníu með aðsetur í Genf.
Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 21. maí 2002