Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
9. júlí 2002 /
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Staðfest heiti sameinaðs sveitarfélags
Ráðuneytið hefur staðfest tillögu um heiti sveitarfélags sem varð til við sameiningu Gnúpverjahrepps og Skeiðahrepps. Sameiningin tók gildi 9. júní sl.
Hið sameinaða sveitarfélag fékk heitið Skeiða- og Gnúpverjahreppur.