Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
1. ágúst 2002 /
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Varasjóður húsnæðismála tekur formlega til starfa
Með lögum nr. 86/2002, um breytingu á lögum nr. 44/1998 um húsnæðismál, með síðari breytingum, var lagður grunnur að starfrækslu nýs sjóðs, varasjóðs húsnæðismála. Hinum nýja sjóði er ætlað að veita framlög til sveitarfélaga og félaga á þess vegum vegna félagslegra íbúða, sbr. nánari ákvæði þar að lútandi, og tekur hann jafnframt við öllum réttindum og skyldum varasjóðs viðbótarlána sem lagður verður niður samhliða.
Í samræmi við framangreind lög hefur félagsmálaráðherra nú þegar skipað varasjóðnum fimm manna ráðgjafarnefnd. Í nefndinni eru:
Unnið er að undirbúningi frekari reglna um starfsemi sjóðsins og munu upplýsingar þess efnis berast sveitarfélögum innan tíðar.
Frekari upplýsingar veitir undirritaður í síma 545-8100 eða á netfanginu [email protected].
Garðar Jónsson
Formaður ráðgjafarnefndar varasjóðs húsnæðismála
Í samræmi við framangreind lög hefur félagsmálaráðherra nú þegar skipað varasjóðnum fimm manna ráðgjafarnefnd. Í nefndinni eru:
- Guðmundur Bjarnason, bæjarstjóri Fjarðabyggðar
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar
Gunnar Bragi Sveinsson, sveitarstjórnarmaður í Sveitarfélaginu Skagafirði
Hallgrímur Guðmundsson, sérfræðingur á fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins og
Garðar Jónsson, viðskiptafræðingur, sem jafnframt hefur verið skipaður formaður nefndarinnar og starfsmaður.