Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
15. október 2002 /
Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra í veikindaleyfi

Nr. 110


FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu


Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, gekkst undir aðgerð í morgun, á Landsspítala háskólasjúkrahúsi, vegna meins í blöðruhálskirtli. Meinið var staðbundið og gekk aðgerðin mjög vel.

Að lokinni sjúkrahúsvist verður utanríkisráðherra í veikindaleyfi um nokkurt skeið til að hvílast og ná fullri starfsorku.



Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 15. október 2002


Var efnið hjálplegt?