Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
23. apríl 2003 /
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Breyting á nafni sveitarfélags

Með vísan til 4. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 45/1998, með síðari breytingum, staðfesti ráðuneytið hinn 7. apríl 2003 ákvörðun bæjarstjórnar Grindavíkurkaupstaðar frá 12. mars 2003, um breytingu á nafni sveitarfélagsins.
Nýtt heiti sveitarfélagsins er Grindavíkurbær.

Var efnið hjálplegt?