Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
6. júní 2003 /
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Nýr aðstoðarmaður menntamálaráðherra, Borgar Þór Einarsson
Borgar Þór Einarsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Tómasar Inga Olrich menntamálaráðherra.
Menntamálaráðuneytið, 6. júní 2003
Borgar Þór Einarsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Tómasar Inga Olrich menntamálaráðherra. Borgar Þór er 28 ára gamall og er á lokaári í laganámi við Háskóla Íslands. Hann var formaður Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, 2001-2002 og kosningastjóri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi í nýafstöðnum alþingiskosningum. Borgar Þór hefur verið ritstjóri vefritsins Deiglunnar síðan 1998 og starfað sem blaðamaður á Morgunblaðinu samhliða námi. Borgar Þór er í sambúð með Unni Svövu Jóhannsdóttur, félagsfræðinema, og eiga þau saman þrjú börn.
Menntamálaráðuneytið, 6. júní 2003