Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
14. september 2003 /
Innviðaráðuneytið
Samgöngur á nýrri öld
Íslendingar eiga mikið undir öruggum samgöngum og góðri samskiptatækni vegna legu landsins og dreifðrar byggðar. Þegar við bætist mikil verðmætasköpun með útflutningsafurðum og skýlaus krafa um alþjóðlega samkeppnishæfni í menntun, atvinnutækifærum og almennum lífsgæðum, verða samgöngur og samskipti að hornsteinum sem mæðir á alla daga ársins.