Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
19. september 2003 /
Utanríkisráðuneytið
Stjórnmálasamband við Sameinuðu Arabísku Furstadæmin
Nr. 086
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
Þann 17. september undirrituðu Hjálmar W. Hannesson, fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum og Abdulaziz Bin Nasser Al-Shamsi, fastafulltrúi Sameinuðu Arabísku furstadæmanna hjá Sameinuðu þjóðunum, samkomulag um stofnun stjórnmálasambands milli Íslands og Sameinuðu Arabísku furstadæmanna.
Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 19.september 2003