Frá undirritun yfirlýsingar um stofnun stjórnmálasambands við Sýrland
Hjálmar W. Hannesson, sendiherra og fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, og Fayssal Mekdad, sendiherra Sýrlands, undirrituðu í New York í dag, 6. maí, yfirlýsingu um stofnun stjórnmálasambands milli ríkjanna.