Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
10. júní 2004 /
Forsætisráðuneytið

Útför Ronalds Reagan

Davíð Oddsson, forsætisráðherra, og Ástríður Thorarensen, eiginkona hans, verða viðstödd útför Ronalds Reagan, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, í Washington föstudaginn 11. júní.

Forsætisráðherra hefur sent frú Reagan samúðarkveðju.

Í Reykjavík, 10. júní 2004.



Var efnið hjálplegt?