Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
5. ágúst 2004 /
Forsætisráðuneytið

Líðan forsætisráðherra

Davíð Oddsson forsætisráðherra er nú kominn á legudeild Landspítala-háskólasjúkrahúss eftir aðgerð á skjaldkirtli í fyrradag. Líðan ráðherra er góð og hann tekur eðlilegum framförum eftir aðgerðina að sögn lækna.

Í Reykjavík, 5. ágúst 2004.



Var efnið hjálplegt?