Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
19. nóvember 2004 /
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Frestun samræmdra prófa í 4. og 7. bekk skólaárið 2004 - 2005
Menntamálaráðuneytið hefur nú ákveðið hvenær samræmd próf í 4. og 7. bekk verða haldin.
Menntamálaráðuneytið hefur ákveðið að samræmd próf í 4. og 7. bekk skólaárið 2004 - 2005 verði haldin sem hér segir:
Íslenska í 4. og 7. bekk fimmtudagur 3. febrúar 2005 kl. 9:30 - 12:00
Stærðfræði í 4. og 7. bekk föstudagur 4. febrúar 2005 kl. 9:30 - 12:00
Ákvörðun þessi er tekin í samráði við Námsmatsstofnun sem sér um framkvæmd prófanna.