Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
21. febrúar 2005 /
Heilbrigðisráðuneytið
Verkefnisstjóri í upplýsingatækni
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið auglýsir stöðu verkefnisstjóra í upplýsingatækni á heilbrigðissviði lausa til umsóknar. Um er að ræða hlutastarf (40%), a.m.k. fyrst um sinn, og er ráðningin til eins árs. Verkefnistjóri heyrir undir skrifstofustjóra áætlana- og þróunarmála.