Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
4. apríl 2005 /
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Viðurkenningar til framsækinna sveitarfélaga
Á ráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga um nýjungar í stjórnun sveitarfélaga, sem haldin var föstudaginn 1. apríl sl. voru sex sveitarfélögum veittar viðurkenningar fyrir framsækni í stjórnsýslu. Þau sveitarfélög sem hlutu viðurkenningu voru Akureyrarkaupstaður, Hafnarfjarðarkaupstaður, Blönduóssbær, Reykjanesbær, Vatnsleysustrandarhreppur og Garðabær.
Viðurkenningar til framsækinna sveitarfélaga