Dóms- og kirkjumálaráðherra og heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra ásamt forsvarsmönnum Landhelgisgæslunnar og Landspítala-háskólasjúkrahúss, skrifuðu undir nýjan samning um þyrluvakt lækna á Landspítala-háskólasjúkrahúsi í flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli í dag. 03.05.05 Flugskýli Landhelgisgæslunnar
Fréttatilkynning
16/2005
Dóms- og kirkjumálaráðherra og heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra ásamt forsvarsmönnum Landhelgisgæslunnar og Landspítala-háskólasjúkrahúss, skrifuðu undir nýjan samning um þyrluvakt lækna á Landspítala-háskólasjúkrahúsi í flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli í dag. Samkvæmt samningnum hefur Landspítali-Háskólasjúkrahús með höndum umsjón og stjórn þyrluvaktar lækna og tryggir sólarhringsvakt sérþjálfaðra lækna fyrir sjúkra- og björgunarflug með þyrlum og flugvél á vegum Landhelgisgæslunnar.