Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
14. júní 2005 /
Dómsmálaráðuneytið
Skipanir í embætti
Dóms- og kirkjumálaráðherra hefur skipað Ragnheiði Harðardóttur saksóknara í embætti vararíkissaksóknara og Óskar Bjartmarz varðstjóra/rannsóknarlögreglumann í embætti yfirlögregluþjóns hjá sýslumanninum á Seyðisfirði
Fréttatilkynning
Nr.: 21/2005
Dóms- og kirkjumálaráðherra hefur skipað Ragnheiði Harðardóttur saksóknara í embætti vararíkissaksóknara frá og með 1. júlí nk. Þá hefur dóms- og kirkjumálaráðherra skipað Óskar Bjartmarz varðstjóra/rannsóknarlögreglumann í embætti yfirlögregluþjóns hjá sýslumanninum á Seyðisfirði frá og með 1. ágúst nk.
Reykjavík 14. júní 2005