Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
13. september 2005 /
Innviðaráðuneytið
Einfaldað úrskurðarferli í póst- og fjarskiptamálum
Úrskurðarnefnd um póst- og fjarskiptamál verður lögð niður samkvæmt tillögu sem samgönguráðherra lagði fyrir ríkisstjórn þriðjudaginn 6. september.
Í athugasemdum með frumvarpi um breytingar á fjarskiptalögum kemur fram að einfaldara þyki að samgönguráðuneytið úrskurði í málum þar sem ágreiningur um ákvarðanir Póst- og fjarskiptastofnunar á fjarskiptamarkaði kunna að koma upp.