Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
9. janúar 2006 /
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Húnavatnshreppur

Félagsmálaráðuneytið hefur að tillögu hreppsnefndar sameinaðs sveitarfélags, Bólstaðarhlíðarhrepps, Sveinsstaðahrepps, Svínavatnshrepps og Torfalækjarhrepps, staðfest stjórnsýsluheiti fyrir hið nýja sveitarfélag.
Með vísan til auglýsingar nr.116 um staðfestingu félagsmálaráðuneytis á sameiningu Bólstaðarhlíðarhrepps, Sveinsstaðahrepps, Svínavatnshrepps og Torfalækjarhrepps í eitt sveitarfélag skal nýtt stjórnsýsluheiti vera Húnavatnshreppur.
Sveitarfélagið Húnavatnshreppur tók gildi 1. janúar síðastliðinn, en kosið var til nýrrar sveitarstjórnar þann 10. desember 2005.