Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
7. febrúar 2006 /
Utanríkisráðuneytið
Viðvörun vegna ferðalaga til Mið-Austurlanda
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
Nr. 7
Vegna atburða undanfarinna daga og ótryggs ástands ráðleggur utanríkisráðuneytið íslenskum ríkisborgurum að ferðast ekki til Sýrlands og Líbanons eins og sakir standa. Þá eru þeir Íslendingar sem staddir eru annarsstaðar í Miðausturlöndum hvattir til að sýna fyllstu aðgát.