Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
13. mars 2006 /
Innviðaráðuneytið
Í heimsókn hjá aðalskrifstofu Ferðamálaráðs Evrópu
Í síðustu viku heimsótti Sturla Böðvarsson aðalskrifstofu Ferðamálaráðs Evrópu í Brussel.
Þar átti hann fund með Rob Franklin framkvæmdastjóra Ferðamálaráðsins og nokkrum sérfræðingum á skrifstofunni. Á fundinum voru markaðs- og kynningarmál Ferðamálaráðs Evrópu kynnt fyrir ráðherra og hans fólki. Í ferð með ráðherra voru Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri, Jakob Falur Garðarsson fulltrúi ráðuneytisins í Brussel og Magnús Oddsson ferðamálastjóri.