Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
27. júlí 2006 /
Heilbrigðisráðuneytið

Nýr formaður

Birna Svavarsdóttir, hjúkrunarforstjóri, verður formaður stjórnarnefndar Landspítala – háskólasjúkrahúss eftir næsta fund nefndarinnar. Birna hefur verið varamaður Pálma R. Pálmasonar, sem lætur af formennsku frá sama tíma. Pálmi hefur verið formaður frá ársbyrjun 2004 en sat í stjórnarnefndinni næsta kjörtímabil á undan skipaður af Ingibjörgu Pálmadóttur, þáverandi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Varamaður Birnu Svavarsdóttur verður Sigrún Magnúsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi og forstöðumaður Sjóminjasafnsins. Birna Svavarsdóttir var formaður stjórnarnefndar í fjarveru Pálma frá mars til desember á liðnu ári.

Var efnið hjálplegt?