Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
3. apríl 2007 /
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Embætti listdansstjóra Íslenska dansflokksins
Umsóknarfrestur um embætti listdansstjóra Íslenska dansflokksins rann út föstudaginn 30. mars sl.
Umsóknarfrestur um embætti listdansstjóra Íslenska dansflokksins rann út föstudaginn 30. mars sl. Menntamálaráðuneyti bárust fimm umsóknir um stöðuna.
Umsækjendur eru:
- Guðmundur Helgason, dansari og listdanskennari,
- Jóhann Freyr Björgvinsson, dansari, danshöfundur og kennari,
- Katrín Hall, listdansstjóri Íslenska dansflokksins,
- Lára Stefánsdóttir, dansari, danshöfundur og pilateskennari,
- Sveinbjörg Þórhallsdóttir, dansari, danshöfundur og listdanskennari.