Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
15. september 2007 /
Innviðaráðuneytið
Sendiherra Kína á Íslandi hjá samgönguráðherra
Nýr sendiherra Kína á Íslandi, Zhang Keyuan, heimsótti Kristján L. Möller samgönguráðherra í vikunni.
Viðræður þeirra fóru fram á skrifstofu samgönguráðherra og ræddu þeir meðal annars samskipti þjóðanna á sviði samgangna og fjarskipta. Sendiherrann hefur nýverið tekið við embættinu hérlendis.