Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
8. október 2007 /
Forsætisráðuneytið

Fundur forsætisráðherra með Sali Berisha, forsætisráðherra Albaníu

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, mun eiga fund með Sali Berisha, forsætisráðherra Albaníu, þriðjudaginn 9. október n.k. Þar verður fjallað um tvíhliða samskipti ríkjanna og alþjóðamál. Ráðherrarnir munu hitta blaðamenn í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu kl. 08:25.

Var efnið hjálplegt?