Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
10. október 2007 /
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Forstjóri Landmælinga kjörinn forseti EuroGeographics


Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga Íslands og nýkjörinn formaður Samtaka korta- og fasteignastofnana í Evrópu
Magnús Guðmundsson

Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga Íslands, verður forseti samtaka korta- og fasteignastofnana í Evrópu næstu tvö árin. Ársþingi samtakanna, EuroGeographics, lauk í dag í Dubrovnik í Króatíu en Landmælingar Íslands og Fasteignamat ríkisins eiga aðild að þeim fyrir Íslands hönd.

Frétt Landmælinga Íslands um kjör Magnúsar.



Var efnið hjálplegt?