Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
31. október 2007 /
Heilbrigðisráðuneytið
Sjúkraflugvél staðsett á Ísafirði
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur ákveðið að sjúkraflugvél verði staðsett á Ísafirði vetrarmánuðina. Guðlaugur Þór Þórðarson, hefur falið embættismönnum ráðuneytisins að gera viðbótarsamning við flugrekandann sem sinnir sjúkraflugi á svæðinu vegna þessa. Ráðuneytið hefur þegar haft samband við forsvarsmenn Mýflugs og eru vonir bundnar við að sjúkraflugvélin verði staðsett á Ísafjarðarflugvelli um miðjan mánuðinn.