Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
14. desember 2007 /
Dómsmálaráðuneytið

Páll E. Winkel skipaður forstjóri Fangelsismálastofnunar ríkisins

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra skipaði í dag Pál E. Winkel aðstoðarríkislögreglustjóra í embætti forstjóra Fangelsismálastofnunar ríkisins.

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra skipaði í dag Pál E. Winkel aðstoðarríkislögreglustjóra í embætti forstjóra Fangelsismálastofnunar ríkisins. Umóknarfrestur rann út 10. desember sl. og voru umsækjendur auk Páls þau Erla Kristín Árnadóttir, lögfræðingur hjá fangelsismálastofnun, og Halldór Frímannsson, lögmaður á fjármálasviði Reykjavíkurborgar.

Reykjavík, 14. desember 2007.



Var efnið hjálplegt?