Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
27. febrúar 2008 /
Atvinnuvegaráðuneytið

Nr. 5/2008 - Loðnuveiðar leyfðar á ný

Loðnuveiðar leyfðar á ný

 Ákveðið hefur verið að fella úr gildi reglugerð um bann við loðnuveiðum og er það gert á grundvelli ráðgjafar Hafrannsóknastofnunarinnar. Jafnframt er gefið út breytt heildaraflamark þannig að í hlut Íslendinga koma um 100 þúsund tonn, í stað þeirra 121 þúsund tonna sem áður var búið að úthluta.

Eins og fram hefur komið mun Hafrannsóknastofnunin áfram fylgjast með þróun mála á miðunum og meta ástandið.

 Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu

27. febrúar 2008



Var efnið hjálplegt?