Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
15. apríl 2008 /
Dómsmálaráðuneytið

Ragna Árnadóttir sett ráðuneytisstjóri til 1. ágúst


Ragna Árnadóttir, settur ráðuneytisstjóri
Ragna Árnadóttir, settur ráðuneytisstjóri dóms- og kirkjumálaráðuneytisins.

Þorsteinn Geirsson, ráðuneytisstjóri dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, hefur óskað eftir leyfi frá störfum til 1. ágúst 2008 vegna veikinda. Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri lagaskrifstofu ráðuneytisins, hefur verið sett ráðuneytisstjóri meðan á leyfi hans stendur. Þá hefur Þórunni J. Hafstein, skrifstofustjóra dómsmála- og löggæsluskrifstofu, verið falið að vera staðgengill ráðuneytisstjóra til sama tíma.



Var efnið hjálplegt?