Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
30. apríl 2008 /
Innviðaráðuneytið
Ræddu ganginn í Héðinsfjarðargöngum
Framkvæmdastjóri tékkneska verktakafyrirtækisins Metrostav, Jiri Belohlav, heimsótti Kristján L. Möller samgönguráðherra í morgun. Ræddu þeir einkum verkefni Metrostav hérlendis sem er Héðinsfjarðargöngin sem unnin eru í samstarfi við Háfell en framkvæmdastjórinn var hér í stuttri heimsókn. Búið er að sprengja vel yfir 60% af lengd ganganna.