Nýtt rit: Menntun, sköpunarkraftur og frumkvæði á tímum hnattrænna breytinga
Út er komið ritið Menntun, sköpunarkraftur og frumkvæði á tímum hnattrænna breytinga - Formennskuáætlun Íslendinga í Norrænu ráðherranefndinni 2009 á sviði vísinda, menningar og mennta Menntamal_danska
Út er komið ritið Menntun, sköpunarkraftur og frumkvæði á tímum hnattrænna breytinga - Formennskuáætlun Íslendinga í Norrænu ráðherranefndinni 2009 á sviði vísinda, menningar og mennta. Ritið er gefið út á íslensku, dönsku og finnsku.
Áherslur Íslendinga á sviði vísinda, menningar og mennta á formennskuárinu taka mið af yfirlýsingum forsætisráðherra Norðurlanda í Punkaharju 2007 og Riksgränsen 2008 um viðbrögð við hnattvæðingu og loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra á samkeppnishæfni og lífskjör á Norðurlöndunum.