Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
8. janúar 2009 /
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Skipun framkvæmdastjóra Lánasjóðs íslenskra námsmanna
Þrjátíu og fjórar umsóknir bárust um embætti framkvæmdastjóra Lánasjóðs íslenskra námsmanna.
Þrjátíu og fjórar umsóknir bárust um embætti framkvæmdastjóra Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Menntamálaráðherra hefur að fenginni umsögn stjórnar sjóðsins skipað Guðrúnu Ragnarsdóttur í embætti framkvæmdastjóra Lánasjóðs íslenskra námsmanna til fimm ára frá 1. febrúar nk. að telja.