Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
1. febrúar 2009 /
Forsætisráðuneytið

Ríkisráðsfundir á Bessastöðum sunnudaginn 1. febrúar 2009

Frá ríkisráðsritara.

Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman til tveggja funda á Bessastöðum í dag. Hefst sá fyrri kl. 17:00, þar sem annað ráðuneyti Geirs H. Haarde lýkur störfum. Seinni fundurinn hefst kl. 18:00 þar sem forseti Íslands mun skipa fyrsta ráðuneyti Jóhönnu Sigurðardóttur.

Reykjavík 1. febrúar 2009



Var efnið hjálplegt?