Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
3. febrúar 2009 /
Atvinnuvegaráðuneytið
Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar
Ríkisstjórn Íslands áréttar að innstæður í innlendum viðskiptabönkum og sparisjóðum og útibúum þeirra hér á landi eru tryggðar að fullu.
Með innstæðum er átt við allar innstæður almennra sparifjáreigenda og fyrirtækja sem trygging innstæðudeildar Tryggingasjóðs innstæðueigenda tekur til.
Reykjavík, 3. febrúar 2009.