Kynntu þér styrkjaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir menningu og listir
Norræna styrkjaáætlunin stendur fyrir kynningarfundi Norrænu menningargáttarinnar í Norræna húsinu 16. febrúar. ~4369892
Ert þú listamaður eða vinnur þú á annan hátt að menningu og listum?
Viltu fá alþjóðlegan vinkil á verkefnin þín?
Viltu mynda ný tengsl?
Ertu með áhugavert verkefni?
Ef þú svarar þessum spurningum játandi mun menningaráætlun Norrænu ráðherranefndarinnar líklega vekja áhuga þinn. Þá stendur Norræna styrkjaáætlunin fyrir kynningarfundi Norrænu menningargáttarinnar í Norræna húsinu.
Bergljót Jónsdóttir forstjóri segir frá þeim möguleikum sem Norræna styrkjaáætlunin býður upp á og gefur góð ráð til umsækjenda. Eftir stutta kynningu verður gerð grein fyrir verkefni sem Menningargáttin hefur styrkt. Síðan fara fram pallborðsumræður með; Ágústi Guðmundsyni, Bergljótu Jónsdóttur, Hávari Sigurjónssyni, Ragnheiði Tryggvadóttur, Signýju Ormarsdóttur og Þuríði Helgu Kristjánsdóttur.
Mánudaginn 16. febrúar 2009 kl 13:00 í Norræna húsinu, Sturlugötu 5, 101 Reykjavík.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á [email protected] fyrir 14.2.2009.