Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
20. febrúar 2009 /
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Guðrún Nordal skipuð í embætti forstöðumanns Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Menntamálaráðherra hefur skipað Guðrúnu Nordal í embætti forstöðumanns Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum til fimm ára frá 1. mars nk. að telja.
Fjórar umsóknir bárust um embætti forstöðumanns Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
Menntamálaráðherra hefur að fenginni umsögn dómnefndar Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum um prófessorshæfi umsækjenda og stjórnar stofnunarinnar skipað Guðrúnu Nordal í embætti forstöðumanns Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum til fimm ára frá 1. mars nk. að telja.