Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
25. febrúar 2009 /
Dómsmálaráðuneytið
Umsækjendur um embætti saksóknara við ríkissaksóknaraembættið
Fimm umsóknir bárust um embætti saksóknara við ríkissaksóknaraembættið, en umsóknarfrestur rann út 18. febrúar síðastliðinn.
Fimm umsóknir bárust um embætti saksóknara við ríkissaksóknaraembættið, en umsóknarfrestur rann út 18. febrúar síðastliðinn. Dóms- og kirkjumálaráðherra skipar í embættið frá og með 1. mars 2009 til fimm ára.
Umsækjendur eru:
Björn Þorvaldsson, aðstoðarsaksóknari og staðgengill saksóknara efnahagsbrota
Daði Kristjánsson, settur saksóknari
Hulda Elsa Björgvinsdóttir, settur saksóknari
Ragnheiður Jónsdóttir, lögmaður
Sigurður Gísli Gíslason, lögmaður við embætti ríkislögmanns.