Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
19. mars 2009 /
Innviðaráðuneytið
Breytingar á reglugerðum um skírteini
Tilbúin eru drög að reglugerð um breytingu á nokkrum reglugerðum um skírteini útgefnum af Flugmálastjórn Íslands. Óskað er umsagnar hagsmunaaðila á netfangið [email protected] í síðasta lagi fyrir 3. apríl næstkomandi.
Um er að ræða breytingar á reglugerð um skírteini útgefnum af Flugmálastjórn Íslands nr. 400/2008, reglugerð um skírteini flugliða á flugvél, nr. 401/2008 og reglugerð um skírteini flugumferðarstjóra, nr. 404/2008
Breytingarnar lúta flestar að leiðréttingum og minniháttar breytingum á orðalagi.
Vakin er athygli á því að með breytingum á reglugerð nr. 400/2008 eru felld inn ákvæði reglugerðar um skráningu flugtíma, nr. 90/1977. Fellur sú reglugerð niður með þessum breytingum.