Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
24. júní 2009 /
Dómsmálaráðuneytið

Umsækjendur um embætti forstjóra Útlendingastofnunar sem laust er til setningar í sex mánuði

Fjórar umsóknir bárust um embætti forstjóra Útlendingastofnunar sem laust er til setningar í sex mánuði, en umsóknarfrestur rann út 16. júní sl. Dóms- og kirkjumálaráðherra setur í embættið frá og með 1. júlí 2009, til og með 31. desember 2009, vegna framlengds leyfis skipaðs forstjóra til næstu áramóta.

Umsækjendur eru:

Elín Jónsdóttir, lögfræðingur
Hreiðar Eiríksson, lögfræðingur
Jóhann Baldursson, lögfræðingur
Rósa Dögg Flosadóttir, lögfræðingur.



Var efnið hjálplegt?