Lovísa Ásbjörnsdóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, tilnefnd af umhverfisráðuneyti,
Ragnheiður H. Þórarinsdóttir, sérfræðingur í menntamálaráðuneyti,
Sigurður Á. Þráinsson, sérfræðingur í umhverfisráðuneyti, tilnefndur af umhverfisráðuneyti.
Hlutverk nefndarinnar er að fylgja eftir heimsminjasamningi UNESCO fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Í því felst m.a. að gera tillögur til ríkisstjórnar um íslenska staði sem ættu heima á heimsminjaskrá UNESCO um menningar- og náttúruarfleifð heims og undirbúa tilnefningar íslenskra staða á heimsminjaskrána. Tveir íslenskir staðir eru nú á heimsminjaskrá UNESCO: Þingvellir og Surtsey.