Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
1. október 2009 /
Innviðaráðuneytið
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti
Nafn samgönguráðuneytisins breytist í dag, 1. október, og verður framvegis samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti.
Breytingin er gerð í kjölfar lagasetningar Alþingis, nr. 98/2009, þar sem heiti nokkurra ráðuneyta er breytt í kjölfar breytinga á verkefnum. Hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu kemur nafnabreytingin í framhaldi af flutningi sveitarstjórnarmála í byrjun síðasta árs frá félagsmálaráðuneytinu til samgöngu- og sveitarstjórnaráðuneytisins eins og nafn ráðuneytisins er nú.