Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 2010 verður haldinn 9. febrúar næstkomandi undir yfirskriftinni „Hugsaðu áður en þú sendir”. Í tilefni dagsins stendur SAFT fyrir opnu málþingi í Skriðu, aðalbyggingu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands v/Stakkahlíð, kl 14.30-16.30 NETORYGGISDAGUR
Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 2010 verður haldinn 9. febrúar næstkomandi undir yfirskriftinni „Hugsaðu áður en þú sendir”. Í tilefni dagsins stendur SAFT fyrir opnu málþingi í Skriðu, aðalbyggingu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands v/Stakkahlíð, kl 14.30-16.30.
Fundarstjóri er Páll Óskar Hjálmtýsson.
Dagskrá
Setningarræða
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra
Ringulreiðarmálið” - Myndbirtingar barna og unglinga á netinu. Hvað segja netþjónustuaðilar?
Hrannar Pétursson, forstöðumaður almennatengsla hjá Vodafone:
Reynsluheimur unga fólksins: Vinasöfnun og myndbirtingar á félagsnetsíðum
Einar Norðfjörð og Anna Kristína Lobers, ungmennaráði SAFT
Friðhelgi á jaðri netsins
Halldór J. Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi
Þolmörkin færðust til
Jónas Kristjánsson, ritstjóri
Netsiðferði - Persónuvernd og pólitískur áróður
Salvör Kristjana Gissurardóttir, lektor í upplýsingatækni og tölvunotkun í námi og kennslu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands:
Félagsnet í fræðilegu samhengi: Rafræn tengsl og persónusköpun ungs fólks á netinu
Sólveig Jakobsdóttir, Rannsóknarstofu í upplýsingatækni og miðlun, Menntavísindasviði Háskóla Íslands
Rannsókn mála tengd netinu
Sigríður J. Hjaltested, aðstoðarsaksóknari, Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu
Verðlaunaafhending
Sjöfn Þórðardóttir, formaður Heimilis og skóla, og Emil Einarsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Nýherja, veita verðlaun í nemendasamkeppni um gerð jafningjafræðsluefnis um jákvæða og örugga netnotkun
Pallborðsumræður
Veitingar
Málþingið verður sent beint út á vefnum. Vefútsending