Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
9. febrúar 2010 /
Utanríkisráðuneytið
Afhending trúnaðarbréfs í Bretlandi
Benedikt Jónsson, sendiherra, afhenti í dag, þriðjudaginn 9. febrúar 2010, Elísabetu II. Bretadrottningu trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Bretlandi.
Við þetta tækifæri áttu sendiherra og Bretadrottning vinsamlegar samræður um almenn samskipti ríkjanna, fyrr og nú. Óskaði Bretadrottning Íslendingum allra heilla á þeim erfiðleikatímum sem nú væru.